Góður jólaklúbbur í gær hjá Eygló. Rósa búin að setja inn fleiri myndir. Vonandi fer maður að sjá myndir frá Svönu og Ásdísi fljótlega
Fleiri myndir
Skrifað í Uncategorized
Mynda saknað
Sælar konur
Er ekki komið að því að setja inn myndir af verkum ykkar, af nógu er að taka.
Þorgerður
Skrifað í Uncategorized
Föndurkvöld
Sælar stelpur. Lítið að gerast á síðunni okkar en þó komið að föndurkvöldi hjá Svönu miðvikudaginn 2. apríl. Ég er að hugsa um að taka með mér blokkir sem ég er að gera í mánaðarteppinu sem ég byrjaði á í síðustu viku, mjög spennandi.
Hlakka til að sjá ykkur.
Þorgerður
Skrifað í Uncategorized
Föndurkvöld
Þá er það næsta föndurkvöld hjá mér, miðvikudaginn 5. mars.
Hlakka til að hitta ykkur.
Þorgerður
Skrifað í Uncategorized
Hinn mikli saumalaugardagur
Saumalaugardagurinn rann upp eins og allir dagar. Við vorum búnar að hlakka mikið til og setja okkur í stellingar. Við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Því miður vantaði Rósu en hún verður með næst. Svana byrjaði á draumapúðanum sínum. Hún skar og skar niður efni í hann og við vorum farnar að vorkenna henni að eiga eftir að sauma þetta allt saman aftur. Eygló sem þykist ekki mikið hafa verið í bútasaum fannst þetta náttúrulega alveg út í hött, að skera efnið allt niður í örsmáa búta og sauma þá svo saman aftur og fór eitthvað að tala um ÞESÁ-syndróm. Við vorum farnar að kalla púðann ,,martröð” en ekki draum. Það komst samt mynd á bútana hennar Svönu þegar henni tókst að sauma eina blokk áður en við hættum Þorgerður dundaði sér við Hetjuteppi sem hún er að sauma ásamt Rögnu Páls í Lundarskóla. Eygló byrjaði á meistarastykkinu sínu sem er dúkur á stofuborðið hennar og gekk bara vel. Ásdís ræðst ekki í nein smáverkefni heldur setti saman heilt teppi, þræddi og setti bindingu, engin smá afköst það. Rúsinan í pylsuendanum var þegar Gunni hennar Svönu kom með konudagskökuna sem við kláruðum næstum því. Takk fyrir okkur Gunni
Skrifað í Uncategorized
Hvað er framundan?
Hvað er framundan?
- Í fyrsta lagi ætlar hver og ein að mynda verkin sín og setja inn á síðuna okkar.
- Svo er föndurkvöld einu sinni í mánuði, næst þann 5. mars hjá Þorgerði.
- Lengi hefur staðið til að hafa saumahelgi í Sandvík á Hauganesi. Nú er búið að ákveða að gera það síðustu helgina í apríl 2008. Þar ætlum við að sauma frá föstudegi til sunnudags, fara í pottinn hennar Eyglóar og svo fáum við okkur að öllum líkindum stuttan göngutúr ef tími vinnst til. Eiginmennirnir ætla svo að koma og elda handa okkur, en þeir munu hafa aðsetur í öðru húsi.
- En áður en af því verður ætlum við að hittast einn langan laugardag, sauma saman og hita upp.
- Laugardagurinn 23. febrúar verður væntanlega fyrir valinu
- Laugardagurinn 23. febrúar verður væntanlega fyrir valinu
Skrifað í Uncategorized
Föndurkvöld á afmælisdegi Ásdísar
Skrifað í Uncategorized
Saumalaugardagur í Norðurorku
Skrifað í Uncategorized
Halló – hér erum við!!!
Jæja, þá er hún farin í loftið föndursíðan okkar sem við höfum talað um í nokkra mánuði að koma okkur upp!! Vonandi verður hún okkur bæði til gagns og ánægju og ekki væri nú verra ef einhver þarna út á hinu stóra Interneti hefði gaman af að skoða hana líka
Skrifað í Uncategorized




